Fréttir

Áhugakönnun á völdum svæðum og tilboð til heimila í Gerðum

3.11.2011
Áhugakönnun á völdum svæðum í Reykjavík, Kópavogi og Hafnarfirði

Nú fer fram skráning á áhuga á Ljósleiðaranum á völdum svæðum í Reykjavík, Kópavogi og Hafnarfirði. Íbúar á viðkomandi svæðum fengu kynningarbréf send heim til sín og geta haft áhrif á tengiáætlun næstu ára með því að skrá áhuga fyrir tengingu heimilisins. Röðun svæða í tengiáætlun getur ráðist af áhuga íbúa á svæðinu. Skráning fer fram á síðunni www.gagnaveita.is/skraning.


Tilboð til heimila í Gerðum í Reykjavík

Íbúar í Gerðum í Reykjavík fengu einnig sent bréf þar sem tilkynnt er að húsaskoðun sé hafin í hverfinu og í kjölfarið tengist það Ljósleiðaranum. Íbúum í hverfinu gefst tækifæri til að panta þjónustu á vefnum www.gagnaveita.is/pontun á meðan á framkvæmdatíma stendur.

Get ég tengst?

  

Gagnlegt að vita

 

Gaman að vita

Einn stærsti kostur Ljósleiðarans er gagnvirkt sjónvarp. Með gagnvirku sjónvarpi getur þú fengið myndleigu, allar íslenskar sjónvarpsrásir og fjölda erlendra rása.

Hægt er að hafa fleiri en einn myndlykil án þess að það hafi áhrif á hraða Internetsins.