Breyting á greiðanda
21.6.2010
Viðskiptavinum Ljósleiðarans stendur nú til boða að skrá annan lögaðila en notanda sem greiðanda að aðgangsgjöldum. Greiðandi getur verið einstaklingur, fyrirtæki eða stofnun.
Til að skrá nýjan greiðanda er hægt að senda tölvupóst á
adstod@gagnaveita.is eða hringja í síma 5167777. Með beiðninni þurfa að fylgja upplýsingar um kennitölu, tölvupóst, símanúmer og tengilið greiðanda svo hægt sé að leita staðfestingar ef greiðandi er annar en notandi.