Gagnaveita Reykjavíkur fær ISO-9001 gæðavottun
4.1.2010
Gagnaveita Reykjavíkur fagnar því að vera nú komið með sjálfstæða vottun á ISO-9001 gæðakerfi, fyrst allra fjarskiptafyrirtækja. Gagnaveitu Reykjavíkur var á gamlársdag afhent skjal til staðfestingar á vottuninni. ISO-9001 er alþjóðlegur gæðastaðall sem tekur á öllum þáttum í starfsemi fyrirtækisins. Vottun hf. sem er óháður aðili sá um úttektina.

Við afhendingu skjalsins. Frá vinstri: Kjartan Kárason frá Vottun hf., Birgir Rafn Þráinsson framkvæmdastjóri GR, Hjörleifur B. Kvaran forstjóri OR, Loftur Reimar Gissurarsson gæðastjóri OR, Ingvar Garðarsson stjórnarformaður GR og Páll Erland framkvæmdastjóri hjá OR.