Fréttir

Gagnaveita Reykjavíkur styrkir vöktun Heklu.

16.12.2009
Búið er að taka í notkun vefmyndavél sem vaktar Heklu. Vefmyndavélin sem er staðsett í 700 metra hæð ofan á Búrfelli er beint að Heklu. Hekla gaus síðast 26.febrúar 2000,  en hún gýs venjulega með áratuga millibili og er því von á gosi á næstunni. Mögulegt yrði að fylgjast með þróun gossins í rauntíma og sjá hugsanlega leið hraunrennslis og gosmökks.

Vefmyndavélin á að standast mikið veðurálag. Hægt er að fjarstýra henni og stjórna bæði aðdrætti sem er 35 faldur og sjónarhorni en hægt er að snúa vélinni um 180°.

Öryggismálanefnd RÚV stendur fyrir uppsetningunni í samstarfi við Gagnaveitu Reykjavíkur, Almannavarnir og Fjarska.

Slóð vefmyndavélarinnar er http://www.ruv.is/hekla/

Get ég tengst?

  

Gagnlegt að vita

 

Gaman að vita

Einn stærsti kostur Ljósleiðarans er gagnvirkt sjónvarp. Með gagnvirku sjónvarpi getur þú fengið myndleigu, allar íslenskar sjónvarpsrásir og fjölda erlendra rása.

Hægt er að hafa fleiri en einn myndlykil án þess að það hafi áhrif á hraða Internetsins.