Fréttir

Laust starf hjá Gagnaveitu Reykjavíkur

19.11.2009

Leitað er að drífandi og  metnaðarfullum einstaklingi til starfa sem verkefnastjóri á Framleiðsludeild Gagnaveitu Reykjavíkur.
 

Starfssvið:
Verkefnastjóri mun stýra fjölda verkefna tengdum ljósleiðaravæðingu og annarri starfsemi GR, í starfinu felst:
  • Yfirverkstjórn mannaafla verkefnis
  • Gerð tíma-, kostnaðar- og forðaáætlana
  • Áhættumat og viðbrögð við áhættu
  • Upplýsingagjöf til stjórnenda
  • Gerð útboðslýsinga og þátttaka í framkvæmd útboða
  • Samningagerð við verktaka

Menntunar- og hæfniskröfur: 
  • Háskólapróf í verk- eða tæknifræði æskilegt
  • Reynsla af verkefnastjórn nauðsynleg
  • Góð almennt tæknikunnátta
  • Góð samskiptahæfni
  • Góð skipulags og stjórnunarhæfni
  • Fagleg, markviss og öguð vinnubrögð

Um Gagnaveitu Reykjavíkur
Gagnaveita Reykjavíkur, dótturfélag Orkuveitu Reykjavíkur, vinnur að uppbyggingu, þjónustu og rekstri á einu öflugasta ljósleiðaraneti landsins.  Ljósleiðaranet GR nær um allt höfuðborgarsvæðið, til fjölda fyrirtækja og þúsunda heimila.  Einnig nær netið um vesturland til Bifrastar og um suðurland til Vestmannaeyja.  Um ljósleiðaranetið rekur Gagnaveitan öflugt dreifi- og samskiptakerfi fyrir sjónvarp, síma og Internet, byggt á IP/MPLS tækni.

Áhugasamir hafi samband við Sólrúnu Kristjánsdóttur solrun.kristjansdottir@or.is eða fyllið út rafræna umsókn hér

Get ég tengst?

  

Gagnlegt að vita

 

Gaman að vita

Einn stærsti kostur Ljósleiðarans er gagnvirkt sjónvarp. Með gagnvirku sjónvarpi getur þú fengið myndleigu, allar íslenskar sjónvarpsrásir og fjölda erlendra rása.

Hægt er að hafa fleiri en einn myndlykil án þess að það hafi áhrif á hraða Internetsins.