Ísland meðal fremstu þjóða í ljósleiðaramálum
8.9.2009
Ísland í 6.sæti meðal þjóða heimsins hvað varðar fjölda ljósleiðaratenginga með 5,6% útbreiðslu samkvæmt frétt Vísis.
Svíar eru efstir á listanum yfir fjölda ljósleiðaratenginga en 10,9% heimila þar í landi hafa slíka tengingu. Raunar eru Norðurlandaþjóðirnar fimm meðal efstu 10 landa Evrópu hvað þetta varðar. Norðmenn eru í öðru sæti með 10,2% heimila, Danmörk í fimmta sæti með 5,7% og Ísland þar rétt á eftir í sjötta sæti með 5,6%. Finnar eru svo í tíunda sætinu með 2,4%.
Frétt Vísis í heild má lesa hér
http://visir.is/article/20090908/VIDSKIPTI06/358766767
Gagnaveita Reykjavíkur hefur tengt þúsundir heimila við Ljósleiðarann. Unnið er að því að tengja enn fleiri heimili bæði á höfuðborgarsvæðinu og í nálægum sveitarfélögum. Flettu heimilisfangi þínu upp í leitarvélinni hér til hægri til að kanna hvort þitt heimili sé tengt.