Laus störf í boði hjá Gagnaveitu Reykjavíkur.
5.10.2009
Gagnaveita Reykjavíkur, dótturfélag Orkuveitu Reykjavíkur, vinnur að uppbyggingu, þjónustu og rekstri á gagnaflutningskerfi byggt á ljósleiðaratækni. Um ljósleiðaranetið rekur Gagnaveitan öflugt dreifi- og samskiptakerfi fyrir sjónvarp, síma og Internet, byggt á IP/MPLS tækni.
Deildarstjóri Framleiðsludeildar
Gagnaveita Reykjavíkur leitar að öflugum einstakling í starf deildarstjóra Framleiðsludeildar.
Megin hlutverk Framleiðsludeildar er uppbygging á gagnaflutningskerfi Gagnaveitu Reykjavíkur. Í því felst ljósleiðaravæðing svæða sem og afhending þjónustu til viðskiptavina.
Deildarstjóri er í stjórnendahópi GR, næsti yfirmaður deildarstjóra er framkvæmdastjóri.
Deildarstjóri fylgir fyrirmælum framkvæmdastjóra og þeim verklagsreglum sem varða starf deildarstjóra og starfsemi deildarinnar eins og þær eru á hverjum tíma í rekstrarhandbók GR.
Starfssvið
- Þátttaka í stefnumótun, markmiðasetningu og áætlanagerð GR og ábyrgð á stefnu, markmiðum og áætlunum sinnar deildar, s.s. rekstrar- og fjárfestingaráætlanir.
- Stjórnun viðfangsefna deildarinnar, þ.m.t. verklag, framvinda og eftirlit. Ábyrgð á mótun og viðhaldi verklagsreglna, leiðbeininga og eyðublaða sem varða deildina.
- Ábyrgð á samningagerð deildarinnar og eftirlit með samningum.
- Ábyrgð og stjórnun á starfsmönnum deildarinnar
- Stjórnun kostnaðar deildar og viðfangsefna skv. fjárhagsáætlun, þ.m.t. samþykki og eftirlit
- Ábyrgð á upplýsingagjöf til framkvæmdastjóra um alla meginþætti í starfsemi deildarinnar og ef frávik sem upp koma í starfseminni.
Menntunar- og hæfnikröfur:
- Háskólapróf úr verk- eða raungreinum nauðsynlegt, helst framhaldsmenntun (MSc)
- Reynsla af stjórnun, þ.m.t. mannaforráðum, æskileg
- Góð skipulags og stjórnunarhæfni
- Frumkvæðni, áræðni, árangurssækni og röggsemi til verka
- Góð færni í mannlegum samskiptum og hæfileiki til að hvetja fólk til dáða
- Reynsla og þekking á verkefnastjórn nauðsynleg
- Góður skilningur á kostnaðarbókhaldi
- Góð almenn þekking á verklegum framkvæmdum
- Góð almenn þekking á nútíma tölvu- og nettækni
- Góð þekking á MS Office, sér í lagi Excel og Word
- Góð íslenskukunnátta og ritfærni til skjölunar og skýrslugerðar
- Góð enskukunnátta
- Fagleg, markviss og öguð vinnubrögð
Netsérfræðingur
Leitað er að metnaðarfullum og árangursdrifnum einstaklingum í tæknideild Gagnaveitu Reykjavíkur. Tæknideild sér um tæknilega uppbyggingu, rekstur og viðhald á gagnaflutningskerfi GR.
Starfssvið:
- Rekstur og viðhald á IP/MPLS netkerfi GR
- Skipulagning á útbreiðslu IP/MPLS netkerfis
- Uppfylla kröfur GR um uppitíma og viðgerðir
- Mælingar á gæðum og afkastagetu netbúnaðar
- Tækni- og rekstrarleg samskipti við þjónustuveitur
- Skilgreining á kröfum til alls netbúnaðar
- Val og innkaup á netbúnaði
Menntunar- og hæfnikröfur:
- Háskólapróf í verkfræði, tölvunarfræði eða sambærilegu
- Reynsla af hönnun, uppbyggingu og rekstri flókinna netkerfa er æskileg
- Fagleg, markviss og öguð vinnubrögð
Umsóknarfrestur er til 13.október 2009
Áhugasamir hafi samband við Sólrúnu Kristjánsdóttur solrun.kristjansdottir@or.is eða fyllið út rafræna umsókn hér