Ljósleiðarinn í Hveragerði og á Hellu og Hvolsvelli.
27.4.2009
Nú er búið að tengja fyrsta hluta Hveragerðis við Ljósleiðarann. Tengd heimili eru við götur í Mörkum, Hlíðum, Heiðum, Hraunum og Skógum. Unnið er að því að tengja fleiri heimili í Hveragerði og verða tilkynningar send í hús þegar tengingu er lokið.
Nú hafa þrjú sveitarfélög á Suðurlandi verið tengd Ljósleiðaranum að öllu leyti eða að hluta til. Hveragerði, Hvolsvöllur og Hella.