Áhugakönnun lokið
Áhugakönnun sem GR stóð fyrir á völdum svæðum í Reykjavík, Hafnarfirði og Kópavogi er nú lokið. Verið er að vinna úr niðurstöðu könnunar. Við þökkum öllum sem tóku þátt fyrir áhugann.
Áhugakönnun á völdum svæðum og tilboð til heimila í Gerðum
Nú fer fram skráning á áhuga á Ljósleiðaranum á völdum svæðum í Reykjavík, Kópavogi og Hafnarfirði. Íbúar á viðkomandi svæðum fengu bréf send heim til sín og geta haft áhrif á tengiáætlun næstu ára með því að skrá áhuga fyrir tengingu heimilisins.
Útboð á vegum Gagnaveitu Reykjavíkur
Gagnaveita Reykjavíkur óskar eftir tilboðum í verkið: Jarðvinna og lagnakerfi, FTTH Foldir 1.áfangi.
Hringdu – Nýr þjónustuaðili á Ljósleiðaranum
Fyrirtækið Hringdu er nýr og spennandi þjónustuaðili á Ljósleiðaranum. Hringdu hefur sölu á internet-, síma og sjónvarpsþjónustu um Ljósleiðarann nú um páskana. Meðal vöruframboðs er 100 Mb/s internetþjónusta.
Könnun á áhuga fyrir Ljósleiðaranum lokið.
Áhugakönnun sem var sett af stað í desember er nú lokið. Þátttaka í könnuninni var mjög góð og greinilegt að mikill áhugi er fyrir Ljósleiðaranum. Ákveðið var að hefja framkvæmdir í fimm hverfum út frá þessari könnun.
Breytingar á innheimtukostnaði.
Frá og með gjalddaganum 5. mars breytist tilhögun á innheimtukostnaði. Seðilgjöld þeirra sem fá senda heim greiðsluseðla lækkar úr 251 krónum í 211 krónur. Á móti munu allir aðrir greiðendur greiða færslugjald sem nemur 87 krónum á hvern reikning sem rennur til bankastofnana og annarra greiðslumiðlara.