Fréttir

Góð þátttaka í áhugakönnun

Góð þátttaka var í könnun sem Gagnaveita Reykjavíkur gerði á áhuga á Ljósleiðaranum í nóvember síðastliðnum. Bréf voru send til rúmlega þrjú þúsund heimila í Vesturbæ, Árbæ, Vogahverfi og Grafarvogi. Í ljós kom að áhugi var mestur hjá íbúum í Árbæ og framkvæmdir munu hefjast þar strax eftir áramót.

Áhugakönnun á völdum svæðum

Nú fer fram skráning á áhuga á Ljósleiðaranum á völdum svæðum í Reykjavík, Hafnarfirði og Mosfellsbæ. Íbúar á viðkomandi svæðum fá bréf send heim til sín og geta haft áhrif á tengiáætlun næstu ára með því að skrá áhuga fyrir tengingu heimilisins.

Útboð

Gagnaveita Reykjavíkur óskar eftir tilboðum í verkið: Jarðvinna og lagnakerfi, Árbær 2. áfangi. Verk þetta nær til jarðvinnu og fullnaðarfrágangs lagnakerfis gagnaveitu frá tengistöð Gagnaveitu Reykjavíkur að inntakskössum notenda.

Áhugakönnun á völdum svæðum

Nú fer fram skráning á áhuga á Ljósleiðaranum á völdum svæðum í Reykjavík. Íbúar á viðkomandi svæðum hafa fengið bréf send heim til sín og geta nú haft áhrif á framkvæmdaáætlun með því að skrá áhuga fyrir tengingu heimilisins.

Ljósleiðarinn er nú kominn á allt Akranes

Gagnaveita Reykjavíkur hefur nú lokið lagningu ljósleiðara á Akranesi og var ljósleiðarinn formlega afhentur fulltrúum Akraneskaupstaðar miðvikudaginn 18. ágúst við athöfn í Safnaskálanum í Görðum.

Breyting á greiðanda

Viðskiptavinum Ljósleiðarans stendur nú til boða að skrá annan lögaðila en notanda sem greiðanda að aðgangsgjöldum. Greiðandi getur verið einstaklingur, fyrirtæki eða stofnun.

Hækkun á aðgangsgjaldi um Ljósleiðarann.

Vegna breytinga á virðisaukaskatti hækkar aðgangsgjald Ljósleiðarans úr 2.390 kr. á mánuði í 2.410 kr. á mánuði. Seðilgjald sem leggst á útsenda greiðsluseðla hækkar úr 249 kr.  í 251 kr. Með því að breyta um greiðslumáta er hægt að losna við seðilgjaldið.

Gagnaveita Reykjavíkur fær ISO-9001 gæðavottun

Gagnaveita Reykjavíkur fagnar því að vera nú komið með sjálfstæða vottun á ISO-9001 gæðakerfi, fyrst allra fjarskiptafyrirtækja. Gagnaveitu Reykjavíkur var á gamlársdag afhent skjal til staðfestingar á vottuninni. 

Get ég tengst?

  

Gagnlegt að vita

 

Gaman að vita

Einn stærsti kostur Ljósleiðarans er gagnvirkt sjónvarp. Með gagnvirku sjónvarpi getur þú fengið myndleigu, allar íslenskar sjónvarpsrásir og fjölda erlendra rása.

Hægt er að hafa fleiri en einn myndlykil án þess að það hafi áhrif á hraða Internetsins.