Fréttir

Gagnaveita Reykjavíkur styrkir vöktun Heklu.

16.12.2009
Búið er að taka í notkun vefmyndavél sem vaktar Heklu. Vefmyndavélin sem er staðsett í 700 metra hæð ofan á Búrfelli er beint að Heklu. Hekla gaus síðast 26.febrúar 2000,  en hún gýs venjulega með áratuga millibili og er því von á gosi á næstunni. Mögulegt yrði að fylgjast með þróun gossins í rauntíma og sjá hugsanlega leið hraunrennslis og gosmökks.

Útboð fyrir innanhúslagnir 2010.

26.11.2009
Gagnaveita Reykjavíkur auglýsir útboð fyrir innanhúslagnir 2010. Verkefnið nær til vinnu við innanhúslagnir á heimilum nýrra viðskiptavina Gagnaveitu Reykjavíkur. Í því felst einnig uppsetning endabúnaðar ljósleiðarakerfisins á heimilum, lagning þjónustulagna og tenging ljósleiðara í tengistöð til þess að netsamband komist á endabúnaðinn. Nánari upplýsingar er að finna hér á útboðsvef Orkuveitu Reykjavíkur.

Laust starf hjá Gagnaveitu Reykjavíkur

19.11.2009
Leitað er að drífandi og  metnaðarfullum einstaklingi til starfa sem verkefnastjóri á Framleiðsludeild Gagnaveitu Reykjavíkur.

Laus störf í boði hjá Gagnaveitu Reykjavíkur.

5.10.2009
Gagnaveita Reykjavíkur auglýsir tvær lausar stöður, Deildarstjóri Framleiðsludeildar og Netsérfræðingur. Sjá nánari lýsingu með því að smella á meira.

Ísland meðal fremstu þjóða í ljósleiðaramálum

8.9.2009
Ísland er í 6.sæti meðal þjóða heimsins hvað varðar fjölda ljósleiðaratenginga með 5,6% útbreiðslu.

Hlíðar tengdar

19.8.2009
Hlíðarnar í Reykjavík hafa nú verið tengdar Ljósleiðaranum að miklu leyti.

Fleiri götur á Akranesi tengdar

3.6.2009
Fleiri götur hafa nú verið tengdar á Akranesi til viðbótar við þær sem áður hafa verið tengdar.

Ljósleiðarinn í Hveragerði og á Hellu og Hvolsvelli.

27.4.2009

Nú er búið að tengja fyrsta hluta Hveragerðis við Ljósleiðarann.

Götur á Akranesi tengdar

20.4.2009
Nokkrar götur á Akranesi hafa nú verið tengdar til viðbótar þeim sem áður voru tengdar Ljósleiðaranum. 

Hagar í Vesturbæ tengdir Ljósleiðaranum

2.4.2009
Nú er búið að tengja hluta af Högum í Vesturbæ Reykjavíkur.

Get ég tengst?

  

Gagnlegt að vita

 

Gaman að vita

Einn stærsti kostur Ljósleiðarans er gagnvirkt sjónvarp. Með gagnvirku sjónvarpi getur þú fengið myndleigu, allar íslenskar sjónvarpsrásir og fjölda erlendra rása.

Hægt er að hafa fleiri en einn myndlykil án þess að það hafi áhrif á hraða Internetsins.