Hvað er ljósleiðari?
Ljósleiðarar eru gerðir úr grönnum þráðum úr gleri eða plasti sem eru búnir þeim eiginleikum að geta leitt ljós frá einum stað til annars. Tilkoma ljósleiðara hefur valdið byltingu í samskiptatækni þar sem hann býður upp á meiri flutningsgetu og bandbreidd en nokkur önnur tenging.
Hvað er myndleiga? (Video on demand – VoD)
Myndleiga gerir þér kleift að panta þér mynd frá myndveitu með því einu að nota fjarstýringuna. Hægt er að nota alla helstu virkni eins og á myndbandstækjum t.d. að spóla áfram og stöðva myndina.
Hver er munurinn á Ljósleiðaranum og ADSL tengingu?
ADSL er Internet um símalínu. Ljósleiðarinn er tenging inn á heimili sem býður meðal annars upp á möguleikann á Interneti, en einnig sjónvarpi, síma ofl. Ljósleiðarinn er mun afkastameiri en ADSL og býður upp á miklu meiri möguleika með tilliti til flutningsgetu. Sem dæmi þá er Ljósleiðarinn 100 Mb/s sem er margföld burðargeta miðað við stærstu ADSL tengingu sem er í boði núna. Sami hraði er í báðar áttir (upphal og niðurhal) á Ljósleiðaranum en upphal er hægara en niðurhal á ADSL tengingum.