Heimili
Liggur Internet-, síma- eða sjónvarpsþjónusta niðri?
Athugaðu hvort netaðgangstækið sé tengt við rafmagn og bæði logi "power-ljós" og gult eða grænt "link-ljós" Nánari skýringar má sjá á myndunum neðst á síðunni.
- Ef öll ljós loga rétt þá eru allar líkur að ljósleiðarinn sé í lagi. Hafðu samband við þjónustuaðilann þinn til að kanna málið.
- Ef Link ljósið logar EKKI hafðu þá samband við þjónustuver Gagnaveitu Reykjavíkur í síma 516 7777 eða sendu tölvupóst á adstod(hjá)gagnaveita.is
- Ef vitað er að samband datt út vegna t.d. framkvæmda innanhúss er hægt að hafa samband beint við verktaka. Upplýsingar um verktaka sem sinna Ljósleiðaranum er að finna hér.
Á einni gerð netaðgangstækja á að loga gult "link" ljós og rautt "power" ljós eins og sjá má hér fyrir neðan.

Á annari gerð netaðgangstækja á að loga grænt"power" ljós og gult "link" ljós.

Athugaðu hvort þjónustutæki séu rétt tengd við netaðgangstækið:
- Tölva eða beinir tengist í tengi á netaðgangstækinu merkt "OUT1" eða "OUT2" eða "ETH1" eða "ETH2" (merking fer eftir tegund tækis)
- Myndlykill tengist í tengi á netaðgangstækinu merkt "OUT3" eða "ETH3" eða "ETH4" (merking fer eftir tegund tækis)
- Er samtenging milli net- og/eða sjónvarpstengja netaðgangstækis? Slíkt getur valdið truflunum og lokun á Ljósleiðaranum. Samtenging getur orðið með eftirfarandi hætti:
- Snúra frá sjónvarpstengi tengd í netbeininn
- Snúrur frá net- og sjónvarpstengjum liggja báðar í sama sviss
- Snúrur frá báðum nettengjum liggja í sama sviss
- Snúrur frá báðum sjónvarpstengjum liggja í sama sviss (á ekki við um allar tegundir netaðgangstækja)
- Ef þú býrð í fjölbýli og ert að nota svokallaðan raflínubúnað sem er sérstakt tæki sem dreifir net- eða sjónvarpsmerki gegnum raflagnir þá getur samtenging orðið við aðra í húsinu sem nota samskonar tæki þegar rafmagn fer af húsinu. Endurræsing á raflínubúnaðinum ætti að laga þetta.