Þegar inn er komið
Þegar keypt er Internet-, síma– eða sjónvarpsþjónusta hjá þjónustuaðilum er sett upp netaðgangstæki á heimilinu. Heimilið þarf ekki að greiða fyrir uppsetninguna. Gagnaveita Reykjavíkur staðsetur netaðgangstækið í samráði við íbúa. Tækið er yfirleitt staðsett miðsvæðis á heimilinu svo auðvelt sé að tengja það við síma, sjónvarp og tölvu. Mismunandi er eftir heimilum hvaða lagnaleið hentar hverju sinni. Ef smáspennutafla og lagnir eru til staðar er netaðgangstækið sett upp við hlið töflunnar svo hægt sé að nýta þær lagnir til að tengja annan búnað.
Á þessari mynd sést hvernig jaðarbúnaður og tæki eru tengd við netaðgangstæki.

Skýringar á tækjum og búnaði innanhúss
Inntakskassi
Inntakskassi er kassi sem staðsettur er fyrir innan húsvegg og tekur á móti ljósleiðaranum inn í húsið. Húseigandi þarf ekki að tengja sjálfur neinn búnað við inntakskassann.
Netaðgangstæki
Frá inntakskassa er lagður ljósleiðari að netaðgangstæki. Netaðgangstæki er endabúnaður á ljósleiðarann sem kemur þér í samband við Internet, síma og sjónvarp. Á tækinu eru tvö RJ11 tengi fyrir venjuleg símtæki og þrjú RJ45 tengi (tvö fyrir tölvu og eitt fyrir myndlykil). Ef tengja á fleiri en eitt tæki sömu tegundar við netaðgangstækið, t.a.m. tvo myndlykla, þá þarf skipti þar á milli.
Beinir (e. Router)
Beinir er notaður ef tengja á fleiri en tvær tölvur við Internetið eða ef óskað er eftir þráðlausu neti innan heimilis. Flestir Internetþjónustuaðilar leggja viðskiptavinum sínum til beini en einnig er hægt að kaupa hann í tölvubúðum.
Myndlykill
Fyrir gagnvirka sjónvarpið þarf að tengja myndlykil við netaðgangstæki og sjónvarp. Einn myndlykil þarf fyrir hvert sjónvarpstæki og því þarf að tengja skipti á milli netaðgangstækis og myndlykils ef tengja á fleiri en eitt sjónvarpstæki. Myndlykil færðu afhentan þegar þú pantar sjónvarpsþjónustu.
Skiptir (e. Switch)
Skiptir er notaður þegar tengja á fleiri en eitt sjónvarpstæki. Þá er skiptirinn staðsettur á milli netaðgangstækis og myndlykils. Skiptirinn deilir sjónvarpsmerkinu niður á fleiri tæki innan heimilisins. Skiptir er einfaldur og ódýr búnaður sem fæst í öllum tölvubúðum.
Dæmi um ljósleiðaratengt hús sem er ekki með smáspennutöflu
- Tvö sjónvörp tengd í gegnum skipti
- Tvær tölvur tengdar í gegnum þráðlausan beini
- Tveir símar tengdir inn á fyrirliggjandi símalagnir
Smelltu á myndina hér að neðan til að sjá stærri mynd: 