Heimili

ALMENNIR VIÐSKIPTASKILMÁLAR LJÓSLEIÐARANS. 15.09.2011

1. Almennt
  1. Skilmálar þessir gilda fyrir notkun heimila á ljósleiðaraneti Gagnaveitu Reykjavíkur (GR) sem gengur undir heitinu Ljósleiðarinn.
  2. Ljósleiðarinn er fjarskiptasamband milli heimila og þjónustuaðila sem veita þjónustu sína um ljósleiðaranet GR. Við virkjun Ljósleiðarans telst vera komin á staðfesting á viðskiptaskilmálum þessum.
  3. GR áskilur sér rétt til að gera breytingar á skilmálum þessum og eru slíkar breytingar kynntar á vefsíðunni www.gagnaveita.is.
  4. Viðskiptavinur er rétthafi Ljósleiðarans og ber ábyrgð á notkun hans skv. skilmálum í kafla 2.
  5. Viðskiptavinur ber fulla ábyrgð á greiðslum til GR vegna notkunar á Ljósleiðaranum skv. skilmálum í kafla 3.
  6. Báðir aðilar geta sagt upp samningi þessum skv. skilmálum í kafla 4.
  7. GR ábyrgist ekki tjón sem rekja má til sambandsleysis, rofs á fjarskiptum eða annarra truflana sem kunna að verða á rekstri fjarskiptakerfis GR eða þjónustuaðila, hvort sem slíkt má rekja til ljósleiðarabilana, bilana í netbúnaði eða annarra ástæðna.
  8. GR hefur lagt og tengt ljósleiðara sem hluta af ljósleiðaraneti sínu inn í inntakskassa sem staðsettur er fyrir innan húsvegg og er í eigu GR. Ljósleiðarinn er afhentur til notkunar með uppsetningu á endabúnaði, netaðgangstæki, sem er tæki í eigu GR. Allar lagnir frá inntakskassa að netaðgangstæki eða frá netaðgangstæki að þjónustutækjum eru á ábyrgð og í eigu viðskiptavinar eftir að uppsetningu er lokið.
2. Notkun
  1. Viðskiptavinur er ábyrgur fyrir allri notkun á Ljósleiðaranum, þ.m.t. notkun á þeim endabúnaði sem lagður er til. Ef í ljós kemur að viðskiptavinur misnoti Ljósleiðarann, t.d. á þann hátt að notkun varði við lög eða hafi áhrif á notkun annarra viðskiptavina getur GR lokað á notkun Ljósleiðarans fyrirvaralaust, um stundarsakir eða til frambúðar.
  2. Viðskiptavini er skylt að fara vel með allan búnað sem þeir hafa til afnota og er í eigu GR.  Viðskiptavinur er bótaskyldur skemmist búnaður eða glatist, og rekja má það til ásetnings eða gáleysis viðskiptavinar.  Ef viðskiptavinur skemmir eða glatar fjarskiptabúnaði ber honum að tilkynna GR um það tafarlaust.
  3. Óheimilt er að veita aðilum utan þeirrar íbúðar sem viðskiptavinur er skráður fyrir, s.s. öðrum íbúum fjölbýlishúsa, aðgang að Ljósleiðaranum.
  4. GR áskilur sér rétt til að tengjast netaðgangstæki notenda í þeim tilgangi að veita aðstoð og eða til þess að uppfæra eða stilla netaðgangstækið.
  5. Ljósleiðarinn er ekki ætlaður til notkunar fyrir fyrirtæki. Slíkar gagnalausnir má finna hjá samstarfsaðilum GR, sjá nánar á www.gagnaveita.is.
  6. Þarfnist viðskiptavinur aðstoðar við sjónvarps-, síma- og/eða internetþjónustu skal hann leita til viðkomandi þjónustuaðila.
  7. GR ber ekki ábyrgð á þjónusturofi en leitast þó við að koma þjónustu á að nýju án ástæðulauss dráttar. Ef viðskiptavinur er án þjónustu vegna bilunar í ljósleiðaraneti GR í lengri tíma en 3 daga og ástæðu þess má ekki rekja til athafna af hans hálfu getur hann krafist niðurfellingar aðgangsgjalds í réttu hlutfalli við þann tíma er þjónusturof varir.
3. Greiðslur
  1. Gjaldskrá GR er birt á www.gagnaveita.is/verd.
  2. Viðskiptavinur greiðir mánaðarlegt gjald, svokallað aðgangsgjald, fyrir notkun á Ljósleiðaranum. Gjaldið skal greitt fyrirfram, í byrjun fyrsta mánaðar eftir að frítímabili lýkur. Gjald þetta er samkvæmt gjaldskrá GR hverju sinni og kemur fram á vefsíðunni www.gagnaveita.is. Allar breytingar á gjaldskrá GR eru kynntar viðskiptavinum með að minnsta kosti eins mánaðar fyrirvara á vefsíðunni www.gagnaveita.is. Viðskiptavinir skuldbinda sig til að hlíta gildandi gjaldskrá GR hverju sinni.
  3. Setji GR upp búnað hjá viðskiptavini í tengslum við kaup viðskiptavinar á þjónustu um Ljósleiðarann skuldbindur hann sig til að greiða aðgangsgjald Ljósleiðarans í 5 mánuði eftir að frítímabili lýkur.
  4. Viðskiptavinur skal greiða fyrir útskrift greiðsluseðla, svokallað seðilgjald, skv. gjaldskrá GR nema hann óski þess að reikningar sé skuldfærðir beint á greiðslukort eða eftir öðrum rafrænum greiðsluleiðum og er þá eingöngu innheimt gjald fyrir rafrænan tilkynningar- og greiðslukostnað, skv. gjaldskrá GR.
  5. Gjalddagi og eindagi aðgangsgjalds vegna yfirstandandi mánaðar er að jafnaði fimmti þess mánaðar. Sé reikningur greiddur eftir gjalddaga greiðir viðskiptavinur dráttarvexti frá gjalddaga til greiðsludags skv. III. kafla laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001 auk innheimtukostnaðar skv. gjaldskrá GR.
  6. GR er heimilt að loka fyrir Ljósleiðarann hafi skuld ekki verið greidd innan 30 daga frá gjalddaga . Ef lokað er vegna vanskila ber GR enga ábyrgð á hugsanlegri röskun, óþægindum eða tjóni sem viðskiptavinur kann að verða fyrir vegna þessa.
  7. Athugasemdir við reikninga skulu berast eins fljótt og auðið er og eigi síðar en á gjalddaga. Að öðrum kosti telst reikningurinn samþykktur.
4. Uppsögn
  1. Báðir aðilar geta sagt upp notkun á Ljósleiðaranum. 
  2. Uppsögn á aðgangi um Ljósleiðarann þarf að berast til Gagnaveitu Reykjavíkur og skal hún vera skrifleg, s.s. með tölvupósti á adstod@gagnaveita.is. Uppsögn til GR jafngildir ekki uppsögn á þjónustu um Ljósleiðarann. Segja þarf upp þjónustu um Ljósleiðarann hjá viðkomandi þjónustuaðila.  Segi viðskiptavinur notkun Ljósleiðarans upp þarf uppsögn að hafa borist fyrir 6. dag mánaðar til þess að hún taki gildi um næstu mánaðarmót. Berist hún eftir 6. dag mánaðar þá tekur hún gildi um þar næstu mánaðarmót. Segi viðskiptavinur notkun Ljósleiðarans upp á þeim tíma sem hann er skuldbundinn að greiða aðgangsgjöld, sbr. 3.2 tekur uppsögnin gildi frá og með lok 6. mánaðar eftir að notkun Ljósleiðarans hófst.
  3. Hætti viðskiptavinur við að taka Ljósleiðarann í notkun eftir að uppsetningu á búnaði er lokið, ber honum að greiða til GR gjald sem nemur 5 mánaða notkun á Ljósleiðaranum.
5. Önnur ákvæði
  1. Rísi upp ágreiningur um túlkun og skýringu á skilmálum þessum getur viðskiptavinur sent kvörtun til Póst- og fjarskiptastofnunar.
  2. Um fjarskiptaþjónustu gilda lög um fjarskipti nr. 81/2003 ásamt síðari breytingum. Brot á lögum og reglum Póst- og fjarskiptastofnunar getur valdið tafarlausri lokun á þjónustu.
  3. Að öðru leyti gilda skilmálar samstarfsaðila GR um þá þjónustu sem við á hverju sinni og veitt er um Ljósleiðarann.

Get ég tengst?

  

Gagnlegt að vita

 

Gaman að vita

Einn stærsti kostur Ljósleiðarans er gagnvirkt sjónvarp. Með gagnvirku sjónvarpi getur þú fengið myndleigu, allar íslenskar sjónvarpsrásir og fjölda erlendra rása.

Hægt er að hafa fleiri en einn myndlykil án þess að það hafi áhrif á hraða Internetsins.