Ertu að byggja?
Gott er að gera ráð fyrir fjarskiptalögnum innanhús strax á hönnunarstigi nýbygginga til þess að hægt sé að nýta sér þjónustu um Ljósleiðarann strax og flutt er inn í húsnæðið. Á framtíðarheimilum er æskilegt að gera ráð fyrir að netkapalslögnum (Cat5 eða Cat6) og öllum þeim tækjum sem er gert ráð fyrir að nota. Þessar lagnir þurfa að vera tengdar í miðlægt tæknirými/skáp svo að íbúar hafi val um hvar þeir hafa sjónvörp og tölvur. Gott að gera ráð fyrir lagnaleið frá inntaksstað að þessum miðlæga stað svo að auðveldara sé að leggja ljósleiðaralögn innanhúss.
Nánari upplýsingar um lagnir Ljósleiðarans innanhúss og tengingu við jaðartæki er að finna hér.