Frá inntakskassa er lagður ljósleiðari að netaðgangstæki. Netaðgangstæki er endabúnaður á ljósleiðarann sem kemur þér í samband við Internet, síma og sjónvarp.
Á einni gerð netaðgangstækja
(sjá mynd) eru tvö RJ11 tengi fyrir venjuleg símtæki og þrjú RJ45 tengi, tvö fyrir tölvu og eitt fyrir myndlykil. Ef tengja á fleiri en eitt tæki sömu tegundar við netaðgangstækið, t.a.m. tvo myndlykla, þá þarf skipti þar á milli.
Á annarri gerð netaðgangstækja
(sjá mynd) eru tvö RJ11 tengi fyrir venjuleg símtæki og fjögur RJ45 tengi, tvö fyrir Internet og tvö fyrir myndlykla. Ef tengja á fleiri en tvo myndlykla við þessa gerð þarf að nota skipti.