Framkvæmdir

Innanhúslagnir í fjölbýlishúsum eru oft flóknari en lagnir í einbýlum. Tekið er mið af aðstæðum hverju sinni. Í sumum tilfellum í stærri fjölbýlum þarf að leggja svokallaðar greinilagnir. Þá eru lagðar lagnir frá inntakskassa um sameign upp á allar hæðar sem enda í greinikassa á hverri hæð. Þegar fyrsti viðskiptavinur í húsinu kaupir þjónustu eru þessar lagnir lagðar og þegar næsti viðskiptavinur í sama fjölbýli kaupir þjónustu þá þarf einungis að leggja endalögn frá greinkassanum að íbúðinni.
 

Get ég tengst?

  

Gagnlegt að vita

 

Gaman að vita

Einn stærsti kostur Ljósleiðarans er að hraðinn er sami í báðar áttir ólíkt ADSL og ljósnets tengingum þar sem upphal er ávallt minna en niðurhal.

Hægt er að hafa marga myndlykla án þess að það hafi áhrif á hraða Internetsins.