Að tengja hús við Ljósleiðarann er nokkurra mánaða ferli. Allt frá því að aðstæður eru kannaðar þar til húsið er að fullu tengt. Í sumum tilfellum hefur ljósleiðararör verið lagt samhliða lagningu annara lagna eða við endurnýjun lagna. Á þeim svæðum þarf ekki að fara í húsaskoðun, hönnun eða jarðvinnu heldur er ljósleiðara blásið inn um rörið og í inntakskassa sem er staðsettur inn fyrir húsvegg þegar hverfið er tengt.
Starfsmenn Gagnaveitu Reykjavíkur mæla sér mót við eiganda einbýlishúsa eða fulltrúa húsfélags í fölbýlishúsum og skoða aðstæður. Finna þarf hentugan inntaksstað í húsið og tryggja bestu lagnaleið
á lóðinni sem og innanhúss. Heimsókn þessi er undanfari hönnunar og undirbúningur að verklegri framkvæmd. Kynningarbréf húsaskoðunar er sent til heimila sem liggur fyrir að tengja.
Kynningarbréf húsaskoðunar
Hönnun lagnaleiða á svæðinu. Sérfræðingar okkar í ljósleiðarahönnun hanna hagkvæmar lagnaleiðir sem valda sem minnstu raski og ónæði. Íbúar verða ekki varir við þessa vinnu.
Í flestum tilfellum þarf að grafa eða bora fyrir rörum og tengja rör frá stofnlögn að húsvegg. Lögð er mikil áhersla á að frágangur sé faglegur og rask í lágmarki. Sjá nánar hér í máli og myndum. Kynningarbréf framkvæmda er sendur heimilum þar sem framkvæmdir standa yfir.
Kynningarbréf framkvæmda
Ljósleiðara er blásið inn í rörið. Inntakskassi settur upp inn fyrir húsvegg. Þegar þessu ferli er lokið er heimilið að fullu tengt og tilbúið að kaupa þjónustu. Sjá nánar hér í máli og myndum.
- Heimili er að fullu tengt
Þegar þessu ferli er lokið er heimilið að fullu tengt Ljósleiðaranum og getur keypt þjónustu um Ljósleiðarann. Kynningarbréf þjónustu um Ljósleiðarann er sendur til tengdra heimila.
Kynningarbréf þjónustu um Ljósleiðarann