Vörur

Gagnaveita Reykjavíkur býður fyrirtækjum sem reka fjarskipta og upplýsingatækniþjónustu aðgang að ljósleiðarsamböndum. Þessi þjónusta hentar fyrirtækjum sem hafa þörf fyrir sjálfstæðar, öruggar og hraðar tengingar milli starfsstöðva sinna.

Gagnaveita Reykjavíkur afhendir samband inn fyrir húsvegg kaupanda. Innanhúslagnir eru á kostnað og ábyrgð kaupanda. Gagnaveitan skilar aflmælingum á tengingu og rekur bilanavakt sem er opin allan sólahringinn, alla daga ársins. Til að fá nánari upplýsingar um hráar ljósleiðaratengingar (Dark fiber) hafðu samband við Gagnaveitu Reykjavíkur í síma 516 7777 eða sendu tölvupóst á gagnaveita(hja)gagnaveita.is

Get ég tengst?

  

Gagnlegt að vita

 

Gaman að vita

Einn stærsti kostur Ljósleiðarans er gagnvirkt sjónvarp. Með gagnvirku sjónvarpi getur þú fengið myndleigu, allar íslenskar sjónvarpsrásir og fjölda erlendra rása.

Hægt er að hafa fleiri en einn myndlykil án þess að það hafi áhrif á hraða Internetsins.