Fyrirtæki

Ljósleiðaranet Gagnaveitu Reykjavíkur er af nýrri og fullkominni gerð. Allur rekstur er í höndum fagmanna og mikil áhersla er lögð á öryggi og kerfisbundin rekstur. Gagnaveita Reykjavíkur byggir þjónustu sína eingöngu á ljósleiðara. Kopar eða örbylgjusambönd eru ekki notuð.  

Ljósleiðaranet Gagnaveitu Reykjavíkur nær nú frá Bifröst til Vestmannaeyja og um allt höfuðborgarsvæðið. Á meðal tengdra svæða á höfuðborgarsvæðinu eru Reykjavík,  Kópavogur, Garðabær, Hafnarfjörður, Mosfellsbær, Kjalarnes og Akranes. Fyrir utan höfuðborgarsvæðið eru eftirtaldir staðir einnig tengdir ljósleiðaraneti Gagnaveitu Reykjavíkur: Hveragerði, Selfoss, Hella,  Hvolsvöllur, Vestmannaeyjar, Borgarnes, Hvanneyri og Bifröst.

Smelltu hér til að fá stærra kort af ljósleiðaraneti Gagnaveitu Reykjavíkur á höfuðborgarsvæðinu.

Get ég tengst?

  

Gagnlegt að vita

 

Gaman að vita

Einn stærsti kostur Ljósleiðarans er gagnvirkt sjónvarp. Með gagnvirku sjónvarpi getur þú fengið myndleigu, allar íslenskar sjónvarpsrásir og fjölda erlendra rása.

Hægt er að hafa fleiri en einn myndlykil án þess að það hafi áhrif á hraða Internetsins.