ALMENNIR VIÐSKIPTASKILMÁLAR FYRIR LJÓSLEIÐARASAMBÖND FYRIRTÆKJA
1. Almennt
1. Skilmálar þessir gilda fyrir notkun fyrirtækja á ljósleiðarasamböndum í Ljósleiðaraneti
Gagnaveitu Reykjavíkur (GR).
2. Ljósleiðarasamband er óvirkjuð gagnaflutningsleið milli tveggja tengistaða
(e. dark fiber).
3. GR áskilur sér rétt til að gera breytingar á skilmálum þessum og eru slíkar breytingar
kynntar á vefsíðunni www.gagnaveita.is með a.m.k. eins mánaðar fyrirvara.
4. Viðskiptavinur er rétthafi ljósleiðarasambanda og ber ábyrgð á notkun þeirra
skv.kafla 2.
5. Viðskiptavinur ber fulla ábyrgð á greiðslum til GR vegna notkunar á
ljósleiðarasamböndum skv. kafla 3.
6. GR ábyrgist ekki tjón sem rekja má til sambandsleysis, rofs á fjarskiptum eða annarra
truflana sem kunna að verða á rekstri fjarskiptakerfis GR eða þjónustuaðila, hvort
sem slíkt má rekja til ljósleiðarabilana, bilana í netbúnaði eða annarra ástæðna.
2. Notkun
1. Óheimilt er að tengja búnað við ljósleiðaranet Gagnaveitu Reykjavíkur nema hann
uppfylli kröfur Póst- og fjarskiptastofnunar.
2. Óheimilt er að tengja búnað sem framkallar bylgjulengdarfléttun (e. Wavelength
–Division – Multiplexing) við ljósleiðaranet Gagnaveitu Reykjavíkur án skriflegs
samþykkis frá Gagnaveitu Reykjavíkur
3. Verði bilun á ljósleiðarasambandi skal hún tilkynnt til GR í þjónustunúmer 516 7777.
Tilkynni viðskiptavinur um bilun í ljósleiðarasambandi og í ljós kemur að ekki er um
bilun í ljósleiðarasamböndum eða búnaði GR að ræða innheimtir GR kostnað vegna
útkalls og tæknivinnu skv. gildandi gjaldskrá GR á hverjum tíma.
3. Greiðslur
1. Gjalddagi mánaðargjalds er fimmti hvers mánaðar. Gjalddagi og eindagi reiknings er
sá sami.
2. Viðskiptavinur skal greiða fyrir útskrift greiðsluseðla, svokallað seðilgjald, skv. gjaldskrá
GR nema hann óski þess að reikningur sé skuldfærður eftir rafrænum greiðsluleiðum
og er þá enginn greiðsluseðill sendur út.
3. Sé reikningur greiddur eftir gjalddaga greiðir viðskiptavinur dráttarvexti frá gjalddaga
til greiðsludags skv. III. kafla laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001 auk alls
kostnaðar sem af innheimtu kröfunnar hlýst.
4. Skráður rétthafi er ábyrgur fyrir greiðslu mánaðargjalds, lagnagjalds og annarra gjalda
sem tilgreind eru í samningi.
5. Séu greiðslur í vanskilum 45 dögum eftir gjalddaga er heimilt að loka þeim
ljósleiðarasamböndum sem vanskil ná til.
6. Ef ætla má vegna framkominna atvika að kaupandi geti ekki greitt skuldir sínar á
gjalddaga þeirra, er heimilt að loka ljósleiðaratengingunni fyrirvaralaust, nema kaupandi
setji fram fullnægjandi tryggingu fyrir skuldinni og væntanlegri notkun á yfirstandandi
afnotatímabili.
7. Athugasemdir við reikninga skulu berast eins fljótt og auðið er á netfangið:
gagnaveita@gagnaveita.is eða í síma 516-7777
4. Önnur ákvæði
1. Um fjarskiptaþjónustu gilda lög um fjarskipti nr. 81/2003 ásamt síðari breytingum.
Brot á lögum og reglum Póst- og fjarskiptastofnunar getur valdið tafarlausri lokun
á þjónustu.